Velkomin

Smellið á dyrnar og gluggana
til að sjá hvað leynist í trénu

Blær & stilla

Hljóma er hús í Hafnarfirði sem er fullt af tónlist. Og þar var platan Blær & stilla tekin upp. Hljóðfærin í tónlistinni búa öll í Hljómu nema básúnan. Hvert og eitt þeirra hefur sína eigin rödd, sinn eigin lit og áferð. Þau ljá lögunum rödd sína og skapa í samtali hvert við annað hljómheim hvers lags - ferðalags - fyrir sig. Söngröddin teiknar upp hverja sögu, hvert ferðalag - og fær hljóðfærin með sér um borð að fleyta þeim á flug og siglingu.

Platan er fáanleg á vinyl og á rafrænu formi á bandcamp.com

Lög og textar : Inga Björk Ingadóttir
Laglína Snædrottningar : Achim Zitzmann
Flytjendur Blæ & stillu : Inga Björk Ingadóttir, Haraldur V Sveinbjörnsson, Fríða Dís Guðmundsdóttir og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir
Útsetningar og upptökustjórn : Inga Björk Ingadóttir
Upptökur & hljóðblöndun : Haraldur V Sveinbjörnsson
Hljómjöfnun : Sigurdór Guðmundsson
Teikning : Birgitta Sif
Vefsíðugerð : Trausti Dagsson
Umbrot og frágangur umslags : Fífa Jónsdóttir